Draumabrúðkaupið þitt getur orðið að veruleika með aðstoð frá Mín veisla. Við skiljum að hvert smáatriði á stóra deginum skiptir máli og leggjum metnað okkar í að skapa eftirminnilega upplifun. Hvort sem þú þarft heildarskipulagningu eða einungis aðstoð við einstaka þætti, þá erum við hér til að tryggja að allt gangi hnökralaust fyrir sig.
Í einu af okkar brúðkaupsverkefnum tókum við að okkur allt skipulagið frá upphafi til enda. Veislusalurinn var valinn með þarfir brúðhjónanna í huga og umbreyttur í draumkennda umgjörð með fallegum blómakrönsum, ljómandi ljósaseríum og persónulegum borðskreytingum. Gestir skemmtu sér með ljósmyndakassa sem skapaði óvæntar og skemmtilegar minningar sem munu lifa áfram.
Tónlistin flæddi fullkomlega í gegnum hágæða hljóðkerfi, hvort sem það var fyrir fyrsta dansinn, ræður eða skemmtun fram eftir kvöldi. Borðbúnaður og props voru sérsniðin að þema veislunnar, og þaulreynt starfsfólk sá til þess að allir þættir voru samhæfðir með fagmennsku og smekkvísi.
Þetta getum við aðstoðað þig með:
- Veislusalir: Við hjálpum þér að finna sal sem passar fullkomlega fyrir þinn stóra dag.
- Veitingar: Samstarfsaðilar okkar sjá um gómsætar veitingar og fallega brúðkaupstertu.
- Ljósmyndalausnir: Hvort sem það er DSLR myndakassi, iPad lausn eða 360° myndakassi, þá tryggjum við að minningarnar lifa áfram.
- Skreytingar: Blómaskreytingar, ljósaseríur og sérsniðið borðskraut sem hentar þínu þema.
- Hljóðkerfi: Öflug hljóðkerfi sem passa bæði fyrir dansgólf og ræðuhald.
- Borðbúnaður og props: Sérvalinn búnaður til að fullkomna útlit og upplifun veislunnar.
- Skipulagning: Við bjóðum faglega ráðgjöf og þjónustu svo þú getir notið dagsins áhyggjulaus.
Við leggjum áherslu á augnablikin sem skipta máli
Þegar þú gengur inn í salinn og finnur fyrir ást og gleði vina og fjölskyldu, þegar bros og hlátur fylla rýmið og þessi óvæntu, töfrandi augnablik skapast – það eru einmitt þessar minningar sem við viljum hjálpa þér að varðveita. Með Mín veisla sérð þú um að njóta dagsins, á meðan við sjáum um rest.
Hafðu samband við okkur og við munum sjá til þess að draumabrúðkaupið þitt verði að veruleika.





Reviews
There are no reviews yet.